
Sigríður Indriðadóttir Stjórnendaráðgjafi, fyrirlesari og samskiptaþjálfari
Sigríður er fyrirlesari, stjórnendaráðgjafi og samskiptaþjálfari sem býr yfir áralangri reynslu og víðtækri þekkingu á sviði stjórnunar, mannauðsmála og rekstrar. Hún er mannauðsfræðingur frá Háskólanum í Lundi í Svíþjóð, grunnskólakennari frá Kennaraháskóla Íslands og stjórnendamarkþjálfi frá Háskólanum í Reykjavík.
Sigríður starfaði meðal annars sem framkvæmdastjóri mannauðsmála hjá Mosfellsbæ, Mannviti og Íslandspósti, ásamt því að þjálfa fólk í mannlegum samskiptum hjá Dale Carnegie. Hún starfaði einnig sem grunnskólakennari í mörg ár.
Sem stjórnandi í atvinnulífinu hefur Sigríður leitt og tekið þátt í umfangsmiklum og flóknum stjórnunarverkefnum sem felast í umbyltingu á rekstri og fyrirtækjamenningu og er því vön að takast á við þær síbreytilegu áskoranir sem stjórnendur og starfsfólk glíma við dag frá degi.

Hún starfar í dag sem ráðgjafi með stjórnendum og starfsfólki alls kyns skipulagsheilda að því markmiði að gera góða vinnustaði enn betri.
Sigríður hefur meðal annars sérhæft sig í úrlausn samskipta- og ágreiningsmála, að takast á við meðvirkar aðstæður á vinnustað, samskiptaþjálfun og uppbyggingu á hvetjandi árangursmenningu.

Sigríður hefur hlotið alþjóðlega þjálfun í aðferðafræði Nonviolent Communication á vegum The Center for Nonviolent Communication.
