Valdeflandi leiðtogaþjálfun fyrir stjórnendateymi

Valdeflandi leiðtogaþjálfun fyrir stjórnendateymi er vegferð sem miðar að því að styrkja stjórnendur í að takast á við þær áskoranir sem þau glíma við í daglegu starfi. Markmiðin eru að gera stjórnendur meðvitaðri um sjálf sig, styrkleika sína sem og áhrif sín á líðan, liðsheild og frammistöðu fólks sem og heildarárangur skipulagsheildarinnar
Persónuleg árangursþjálfun með Sigríði Indriða getur stutt við stjórnendur í að takast á við flókin eða viðamikil verkefni, sigrast á áskorunum, taka ákvarðanir, innleiða breytingar, ná markmiðum, viðhalda jafnvægi á milli vinnu og einkalífs og nýta tækifæri til að auka velsæld og árangur í lífi og starfi. Árangursþjálfun stuðlar að faglegum og persónulegum vexti og miðar að því að ná sem mestri breytingu á sem stystum tíma. Notast er við blandaða aðferðafræði markþjálfunar, ráðgjafar og handleiðslu sem miðar að aukinni valdeflingu og meðvitund í stjórnendahlutverkinu.
